Slétt Og Fellt - Valdimar



     
Page format: Left Center Right
Direct link:
BB code:
Embed:

Slétt Og Fellt Lyrics


Flýgur um á framabraut,
ferillinn svo lýtalaus.
Hvergi sést í veikan blett.
Alltsaman svo slétt og fellt.
Geislandi af sjálfstrausti,
í það minnsta út á við.
Handtakið er traust og þétt,
viðmótið svo kunnuglegt.
Heldur rétt á spilunum.
Felur sum í vasanum.
Vinnur þannig hverja gjöf.
Virðist aldrei vanta svör.
Deilir svo út gæðunum
eftir eigin hagsmunum
Stórir strákar, þeir fá mest,

litlu beðin deila rest.
Ég stend upp held áfram eftir fallið.
Einhver þarf að díla við allt draslið.
Svífur um á framabraut.
Sogar til þín allan auð.
Allt er nafnlaust ekkert merkt.
Alltsaman svo slétt og fellt
Í ótta yfir af hjúpun
er vont að halda utan um
allar litlu lygarnar.
Fellur ofan í sprungurnar.
Ég stend upp held áfram eftir fallið.
Einhver þarf að díla við allt draslið.
Valdafíklar skammta gæðin, hirða allt.
Engin prinsipp, engin miskunn. Allt er falt.
Öllu fórnað fyrir frama, blóðug slóð sem aldrei sést.
Öllu fórnað fyrir frama, bakvið tjöldin ekkert sést.
Allt er nafnlaust, engin talar, allt saman svo slétt og fellt.
Allt er nafnlaust, engin tala, allt saman svo slétt og fellt!
Ég stend upp held áfram eftir fallið.
Einhver þarf að díla við allt draslið.
Sviðin jörð og enginn tekur ábyrgð,
Líta undan og vona að andinn hverfi.
Lyrics Submitted by Bjartur Þórhallsson

Enjoy the lyrics !!!